Glötuð tækifæri

0
609

En þurfum við að bíða um sinn eftir því að liðið okkar "fullorðnist". Með því á ég við að það geri ekki þessi mistök sem hægt er að skrifa að sumu leyti á reynsluleysi og sumu leyti á ungæðishátt. Svona leikir eru til að safna stigum svo við getum farið rólegir í síðustu leikina gegn sterku liðunum. Eins og er haf úrslit verið okkur hagstæð en það er ekki víst að svo verði áfram.

Við verðum að fara að sjá liðið taka völdin á vellinum og halda þeim út leiktímann. Því miður segja ummæli Carrick okkur að hugarfarið hjá allavega sumum leikmanna okkar er ekki í lagi. Hann sagði eftir leikinn að hann hefði talið að þeir væru búnir að gera nóg þegar við skoruðum markið. Þeim fannst Sunderland valda þeim neinum vandræðum þannig að það þyrfti í raun aðeins að láta tímann renna. út. Er nema vona að svona fari þegar ekkert er gert til að vinna lélegasta liðið í deildinni nema með einu marki. Ég hef oft velt fyrir mér afhverju við ekki skorum fleiri mörk í leikjum og að það var í fyrsta skipti um síðustu helgi að leikmaður hjá okkur skoraði tvö mörk í leik og þetta er greinilega ástæðan. Þeir nenna ekki að gera meira.
En að leiknum. Jol setti þrjá menn inn í liðið sem ekki voru í síðasta leik. Davids kom inn eftir meiðsli sem hann var reyndar greinilega ekki búinn að ná sér alveg af, þá kom Dawson úr banni og Lee tók stöðu sína eftir að hafa verið í fríi vegna fráfalls föður síns. Á bekkinn settust meðal annars Murphy í sínum fyrsta leik fyrir okkur og Mido var kominn aftur frá Afríkukeppninni. Við byrjuðum illa en náðum svo betri tökum á leiknum og uppskárum mark á 38. mínútu sem var þrælvel unnið. Boltinn barst til Defoe sem fór upp að endamörkum og gaf fyrir á Keane sem þurfti ekki annað en að stýra honum í netið. En eins og áður sagði þá setti liðið bara í hlutlaust og lét skrjóðinn renna það sem eftir var leiks það er þart til þeir fengu á sig markið sem var afskaplega klaufalegt. Þá var aftur sett í botn og Jenas var nærri því að bjarga liðinu en því miður skíturinn var kominn í buxurnar og lyktin hefur verið eftir því .

Liðið:   Defoe, Keane (Mido 69), Lennon (,Huddlestone 85), Davids (Murphy 62), Jenas, Carrick, King, Dawson, Lee, Stalteri, Robinson
Subs:  , , Gardner, Cerny