Tottenham tókst að endurheimta 4. sætið í Ensku úrvalsdeildinni eftir 2-0 sigur á Birmingham í gær. Mörk Spurs komu bæði í seinni háfleik og voru það Aaron Lennon og Robbie Keane sem gerðu mörkin. Spurs hafa nú 2 stiga forskot á Arsenal sem eru í 5. sæti.
Bæði lið byrjuðu leikinn vel og var vörn Birmingham ekki örugg fyrstu mínúturnar en ekki tókst Spurs að notfæra sér það. Tottenham þurftu einnig að verjast mikið í fyrri hálfleik og mega þeir telja sig heppna að hafa ekki lent undir, en sóknarmenn Birmingham ógnuðu marki Spurs ekki mikið.
Seinni hálfleikurinn byrjaði betur og meiri barátta var í liði Spurs og vörnin hélt áfram að standa fyrir sínu með Michael Dawson í broddi fylkingar.
Aaron Lennon skoraði svo fyrsta markið sitt fyrir félagið, eftir frábæra baráttu Jermain Defoe sem neitaði að gefast upp í baráttu við Mario Melchiot. Einnig er hægt að veita dómaranum hrós en hann hefið auðveldlega getað dæmt aukaspyrnu og stoppað leikinn.
Skömmu síðar tryggði síðan Robbie Keane öll stigin eftir að Jermaine Jenas hafði komist í gegn vörn Birmingham frekar auðveldlega. Síðustu mínútur leiksins voru síðan afar rólegar enda sigur Spurs öruggur.
Sigurinn kom Spurs aftur upp fyrir Arsenal og hafa liðin bæði leikið 30 leiki. Eins og staðan er í dag bendir allt til þess að leikur liðanna í lok apríl gæti skorið úr um hvort liðið nái 4. sætinu, en þó eru 8 leikir eftir og örlög Spurs eru svo sannarlega í þeirra höndum.
Lið Spurs: Robinson, Kelly, King, Dawson, Lee, Lennon, Carrick, Davids, Jenas, Keane (Murphy 78), Defoe. Ónotaðir varamenn: Cerny, Tainio, Mido og Gardner






