Martin Jol vill að leikmenn sínir hafi meiri einbeitingu síðustu mínúturnar í leikjum eftir að hafa enn eina ferðina fengið á sig mark á lokamínútunum. Jol segir að þó að liðið hafi spilað vel verði leikmennirnir að taka réttar ákvarðanir.
„Þetta var bara svipað og í leikjunum gegn Leicester og Sunderland, í stað þess að reyna einhverja erfiða sendingu þurfum við koma boltanum á þeirra vallarhelming,” sagði Martin Jol.
„Samt verð ég að viðurkenna að liðið spilaði vel, sérstaklega í seinni hálfleik þegar við breyttum aðeins um leikkerfi og áttum gott tækifæri þegar Jenas komst í gegn.”
„Ef við hefðum hreinasð boltann frá á síðustu mínútunni hefðum við náð í stig. Þetta var ekki frábær leikur en afar yfirvegaður af okkar hálfu. En við verðum að bæta okkur því að þessi mistök gætu kostað okkur,” sagði Jol.






