Varaliðið meistarar Suðurdeildarinnar

0
512

Þau ánægjulegu tíðindi gerðust í kvöld að varalið Arsenal tapaði fyrir varaliði Southampton 1-5 og tryggði þannig okkur meistaratitilinn í suðurriðli varaliðsdeildarinnar. Við munum spila við sigurvegarann úr norður riðlinum um meistarabikarinn.    Þegar við eigum eftir þrjá leiki getur ekkert lið náð okkur að stigum. Liðið hefur unnið 14 af síðustu 15 leikjum sínum. Það hefur gert flest mörk (52) í riðlinum, fengið á sig fæst mörk (11) og við eigum markhæsta mann riðilsins Lee Barnard (20 mörk). Aðalþjálfari er Clive Allen (fyrrum markakóngur okkar). Síðast unnum við þennan titil 1994-95.