Sigur gegn WBA 2-1

0
563

Jol gerði engar breytingar á sigurliðinu frá Birmingham leiknum. Liðið byrjaði þó ekkert alltof vel og átti í basli með West Brom menn sem endaði með að við fengum á okkur mark á 21. mínútu eftir aukaspyrnu sem margir vildu meina að hafi ekki átt að dæma, en það er annað mál.

Eftir markið gerðist það sem hefur verið að gerast nokkrum sinnum í vetur þ.e. að liðið vaknaði og myndaði tölverða pressu fram að hlé. Eftir hlé héldum við áfram að pressa og á 68. mínútu kom loks jöfnunarmarkið þegar Carrick stakk boltanum inn fyrir vörn West Brom á Robbie Keane sem vippaði laglega yfir markmann West Brom. Það var ekki svo að þeir þ.e. West Brom menn hafi ekki átt færi því það áttu þeir en á 88. mínútu gerði markmaður þeirra afdrifarík mistök sem urðu til þess að Defoe komst fyrir boltan og innfyrir markmanninn sem feldi Defoe í tilraun sinni til að ná til boltans. Vítið tók svo Keane og skoraði af öryggi úr því. Það var hans 13. mark í vetur í deildinni. Hann er nú búinn að gera 51. deildarmark fyrir okkur og 59 alls sem gerir hann að markhæðsta leikmanni okkar. Síðustu mínúturnar voru æsispennandi, en við héldum út og lönduðum dýrmætum 3 stigum. Liðið byrjaði illa en sótti sig svo þegar leið á leikinn en það er enginn spurning að liðið verður að fara að leika af meira öryggi ef ekki á illa að fara. 

Liðið: Robinson, Kelly (Mido 59), Lee, Dawson, King, Lennon, Carrick, Davids (84), Jenas, Keane, Defoe. Subs: Cerny, Gardner, Tainio