Okkar menn þoldu greinilega ekki mótlætið sem þeir urðu fyrir upp í Newcastle í dag. Mark á fyrstu mínútu og síðan var Dawson rekinn í sturtu á 60. mínútu og niðurstaðan 3-1 tap. Jol setti Mido inn í byrjunarliðið fyrir Defoe sem fór á bekkinn góðkunna. Þá varð Jol að setja Gardner í vörnina fyrir King sem sagt var að hefði meiðst á æfingu í gær.
Við sýndum ekki nándar sömu baráttu og Newcastle menn í leiknum og einhvern veginn náðum aldrei tökum á þessu. Gardner var mjög óöruggur og Jenas átti slæman leik. Það var helst Keane sem var að leika af fullri getu ásamt Lennon. Aðra er ástæðulaust að nefna. Keane gerði markið eftir fyrirgjöf frá Lennon. Eftir þennan leik held ég að ástæða sé til að gefa Tainio og jafnvel Murphy séns og hvíla þá Jenas og Carrick og það er spurning hvort Davids væri betri ef hann kæmi inná eftir svona klukkutíma leik. Ég óttast raunar að sú barátta sem er í liðinu komi frá honum eða í gegnum hann. Að lokum má benda á að Mido er aðeins skugginn af sjálfum sér þessa daganna.
Við sækjum sjaldan stig upp á St. James Park og það gerðum við ekki núna.
Að lokum spyr ég hvenær fer þetta lið að sýna meistaratakta. Lið sem búið er að verma 4. sæti Úrvaldseildarinnar hlítur að geta hrist það fram úr erminni og á að gera það.
Liðið: Robinson, Kelly, Dawson, Gardner, Lee, Jenas, Carrick, Davids (Murphy 88), Lennon (Defoe 70), Mido, Keane.
Varamenn, Cherny, Stalteri, Huddlestone.






