Leikmenn Tottenham fundu formið í gær eftir tapið gegn Newcastle um daginn. Í heild var leikurinn vel leikinn og úrslitin aldrei í hættu. Við vorum betri allan leikinn en létum þá komast inn í leikinn með marki eftir innkast skömmu eftir að við komumst í 2-0 með mörkum frá Stalteri og Carrick.
Jol gat telft fram King aftur eftir smávægileg meiðsli og Gardner hélt sæti sínu þar sem Dawson hóf tveggja leikja bann sitt. Tainio kom inn í liðið líka eftir smá veikindi og tók sæti Davids sem var á bekknum. Þá kom Stalteri inn í liðið aftur og Kelly féll út.
Það var einmitt Stalteri sem kom okkur yfir með að fylgja eftir skoti frá Keane sem James varði en boltinn barst út í teig þar sem Stalteri kom og setti knöttinn inn. Þetta gerðist á 43. mínútu. Annað markið kom svo á 49. mínútu að Tainio átti sendingu á Carrick sem áf einhverjum óskiljanlegum ástæðum var kominn ínn í teyg og kláraði á svipaðan hátt og fyrsta mark hans og eina fyrir okkur. En langt innkast dugði City mönnum til að komast inn í leikinn aftur en Samaras náði að sneiða boltan í bláhornið. Keane gerði svo mark á 54. en það var dæmt af vegna rangstöðu sem sennilega var rétt en tæpt var það. Eftir þetta höðfum við tök á leiknum og City menn komust lítt áleiðis. Þeir áttu þó skot sem Lee bjargaði á línu og Robinson átti fína markvörslu skömmu síðar en James var klárlega sá sem hafði meira að gera og átti reyndar einn af betri leikjum sínum þrátt fyrir mistök sem Mido hefði átt að nýta betur.






