Spurs-Crystal Palace 1-1
Tíunda mark Defoe í deildinni dugði ekki til að landa sjötta sigrinum í röð. Andy Johnson náði að jafna með skoti sem fljótt á litið hefði átt að hafna í höndum Robinson en hann virtist misreikna hann og var því of seinn í hann. En það er erfitt að átta sig á því. Eftir því sem ég kemst næst verður að segja að CP hafi verðskuldað annað stigið í þessum leik. Þeir voru bertri framan af fyrri hálfleik en í þeim síðari tókum við völdinn eftir að Mendes hafði komið inn á fyrir Ricketts eftir hlé. Defoe var í byrjunarliðinu í stað Keane og þá kom Gardner inn fyrir Naybet og Ziegler fyrir Atouba sem er meiddur. Defoe er nú í öðru til fjórða sæti yfir markhæðstu menn í Úrvalsdeildinni og það er nokkuð langt síðan við vorum með markaskorarara á þessum slóðum. Ég er búinn að bæta við töflu yfir markhæðstu menn deildarinnar á síðuna "Staðan og mörkin". HJ






