Spurs – Everton 5-2
Tottenham lék í dag sinn besta leik í mjög langan tíma. Margir höfðu kviðið því að mæta Everton þar sem þeir voru í fjórða sæti og höfðu átt mjög gott tímabil fram að þessu. Við höfðum þó það í bakhöndina að þeir hafa ekki unnið á WHL síðan 1985 og það breyttist ekki í dag. Ekki batnaði ástandið þegar tilkynnt var að þeir tveir leikmenn okkar sem hafa verið í hvað bestu formi unanfarið þeir Defoe og Brown voru ekki.
Keane og Kanoute voru frammi en enginn framherji var á bekknum. Marney kom inn í byrjunarliðið í stað Brown. Hann lék á hægri kantinum og Mendes fór inn á miðjuna í sína venjulegu stöðu. Að öðru leyti var liðið óbreytt en þó kom Naybet aftur í vörnina og Gardner fór á bekkinn. Leikurinn var ekki nema sextán mínútna gamall þegar Marney skoraði fyrsta markið sem var hans fyrsta fyrir félagið í aðalliðinu. Ziegler bætti við öðru á 27 mínútu og var það hans fyrsta einnig. Rétt fyrir hlé náði Everton að minnka muninn í 2-1. Við vorum miklu betri í fyrri hálfleik. Allt gat samt gerst. Við tókum aftur öll völd á vellinum í seinni hálfleik og á 59. mínútu gerði Mendes sitt fyrsta mark fyrir Totteham eftir undirbúning Marney og sendingu frá Kanoute. Marney átti svo fyrirgjöf á Keane sem hann þurfti ekki annað enn stýra boktanum yfir línuna og staðan var orðin 4-1. Marney var ekki hættur og eftir að hann fékk sendingu frá Carrick þar sem hann var staddur í miðjuhringnum tók hann á rás upp völlunn og þrjátíu metra frá marki lét hann vaða og setti boltann efst í hornið vinstra megin við markmanninn. Við klúðruðum svo vörninni á lokamínútunum og þeir nýttu sér það til að minnka muninn í 5-2 en sigurinn var í höfn og aldrei í hættu. Tottenham lék frábærlega í dag og ég læt fylgja hér ummæli sem ég náði í á netinu. Vonandi er í lagi að þau sé á ensku.
"Tuning in to BBC’s five live extra and what joy to hear the commentators
praising Spurs to the skies……..
I thought the best bit was they said that Spurs on the counter attack looked
like Manure 3years ago when they were at their best!"
"Tuning in to BBC’s five live extra and what joy to hear the commentators praising Spurs to the skies, using words like; "fantastic, brilliant, sparkling, every time the get into the penalty area you think they are going to score, entertaining….", the crowd fabulous, best possible start to 2005"
Liðið: Robinson; Pamarot, Edman, King, Naybet; Marney, Mendes, Carrick, Ziegler; Keane, Kanoute. Varamenn: Fulop, Redknapp, Davenport, Ricketts, Gardner
HJ






