Tap á heimavelli gegn Man.Utd

0
588

Annað tap Tottenham á heimavelli á þessari leiktíð varð að staðreynd í dag þegar liðið tapaði fyrir Manchester United. Lokatölur leiksins urðu 1-2 og skoraði Wayne Rooney mörk Man. Utd en Jermaine Jenas mark Tottenham.

Martin Jol neyddist til að gera nokkrar breytingar á liðinu vegna meiðsla. Ledley King og Anthony Gardner voru báðir frá vegna meiðsla og eru meiðsli King það alvarleg að hann verður frá út tímabilið. Stöðu þeirra í vörninni tóku Dawson, sem lokið hafði banni sínu, og Davenport. Einnig fékk Davids aftur sæti í byrjunarliðinu þar sem Tainio meiddist í leiknum gegn Everton á laugardaginn. Mido var enn frá vegna meiðsla og því fékk Barnard aftur sæti á bekknum og Naybet og Kelly fengu einnig sæti á við hlið hans.

Leikurinn var hraður og spennandi frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu og gæði spilamennskunnar með því betri sem sést hefur á þessari leiktíð. Leikmenn Tottenham byrjuðu leikinn af krafti og áttu góð tækifæri á fyrstu 5 mínútunum og hefðu með smá heppni náð tveggja marka forustu. En skot Defoe á annarri mínútu fór framhjá, þó munaði minnstu að Keane hefði náð að pota í boltann en var of seinn. Þremur mínútum síðar fékk Spurs aukaspyrnu sem Carrick tók og boltinn barst til Dawson sem skaut en Van Der Sar varði, en Dawson hefur verið ansi óheppin í vetur með skot sín. Martin Jol hefur sagt nokkrum sinnum í viðtölum að ef menn nýta ekki færin þá vinna þeir ekki leikina. Og það sannaðist í dag. Eftir þessi dauðafæri fengu United menn skyndisókn sem Rooney skoraði úr eftir fyrirgjöf frá Ronaldo. Rooney skoraði svo aftur á 36. mínútu eftir skelfileg mistök hjá Lee. Lee náði boltanum af Park við endalínu Spurs en ákvað að hlaupa með boltann sjálfur í stað þess að sparka honum út á völlinn. Honum var refsað fyrir þessa ákvörðun því Park náði að pota boltanum til Rooney sem var þá einn fyrir framan markið og skoraði örugglega. Í hálfeik var staðan 2-0 en leikmenn Tottenham höfðu spilað örlítið betur og voru engan veginn tilbúnir til að gefast upp. Á 52. mínútu fékk Tottenham hornspyrnu sem Keane tók og spyrnti inn í teig, þar skallaði Vidic boltann beint í Rio Ferdinand og hrökk boltinn af honum í áttina að netinu þar sem Jenas beið og kom honum örugglega í netið. Eftir þetta voru færi á báða bóga og hefðu mörkin getað orðið fleiri en varnir beggja liða héldu og lokatölur urðu 2-1 fyrir Manchester United.

Lið Spurs:  Robinson, Stalteri, Lee, Dawson, Davenport, Davids (Murphy), Jenas, Carrick, Lennon(Barnard), Keane, Defoe.             Subs: Cerny, Kelly, , Naybet,