Sigur á Goodison Park

0
617

Leikmenn Tottenham héldu fjögurra stiga forustu sinni á Arsenal í fjórða sæti deildarinnar eftir sigur á Everton á Goodison Park í dag. Eina mark leiksins kom eftir vítaspyrnu frá Robbie Keane.

Martin Jol hafði úr stórum hópi að velja fyrir þennan leik þar sem aðeins þeir Dawson og Mido voru fjarverandi. Dawson var að taka út sinn seinni leik í banni vegna tveggja rauðra spjalda á leiktíðinni en Mido átti við meiðsli að stríða. Jol kaus að halda sig við sama lið og í síðasta leik fyrir utan að Defoe kom inn í byrjunarliðið í staðinn fyrir Mido. Það þýddi að Davids sat á bekknum annan leikinn í röð og Lee Barnard, sem skorað hefur 20 mörk fyrir varaliðið, fékk sæti á bekknum vegna fjarveru Mido. Leikurinn var spennandi allt frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu og var jafnt með liðum þrátt fyrir að segja megi að Tottenham hafi verið örlítið betra. Eina mark leiksins kom á 32. mínútu þegar Keane fékk sendingu inn í teig frá Lee en var togaður niður og dómarinn flautaði vítaspyrnu þrátt fyir að Jenas hefði náð boltanum og skorað. Keane steig á vítapunktinn eins og svo oft áður, skaut lágum bolta í hægra hornið og skoraði þrátt fyrir að Wright hefði skutlað sér í rétt horn.  Þrátt fyrir að Tottenham hefði verið betra liðið í fyrri hálfleik neituðu Everton menn að gefast upp og mættu  ákveðnir til leiks í seinni hálfleik og áttu nokkur hættuleg færi. En þó svo að vörn Tottenham hefði sýnt nokkra hættulega og miður fallega takta þá tókst liðinu að halda hreinu og leikurinn endaði með sigri Tottenham. Við skulum vona að þessi sigurganga muni halda áfram um páskana enda kemur Manchester United í heimsókn á annan í páskum og viljum við ekkert annað en sigur í þeim leik.

Lið Spurs: Robinson, Stalteri, Lee, Gardner, King (Davids, 90), Lennon (Davenport, 81), Carrick, Jenas, Tainio (Murphy, 46), Keane, Defoe. Subs: Cerny, Barnard.