Kanoute og Defoe tæpir

0
691

Manchester Utd – Spurs
Jermain Defoe, Fredi Kanoute og Michael Brown eru allir tæpir fyrir leikinn gegn Manchester Utd á þriðjudagskvöld. Defoe og Brown voru ekki með gegn Everton en Kanoute meiddist í þeim leik og á hann minnstan möguleika af þeim þremur að vera með á Old Trafford. Martin Jol greindi frá því að þeir hefðu allir æft í dag en að Kanoute ætti lítinn möguleika á að vera með, en að Defoe væri mun líklegri. Ef hvorki Defoe né Kanoute verða með þá er búist við að Mark Yeates verði í liðinu en hann hefur aðeins leikið einn leik með Tottenham. Bæði hann, Yeates, og Phil Ifill verða í hópnum en ákvörðun verður tekin á þriðjudagsmorgun hvort þeir Defoe, Kanoute og Brown verði með í leiknum.
Tottenham hefur aldrei tekist að sigra á Old Trafford í úrvalsdeildinnni en síðasti sigur Spurs þar var árið 1989, þegar Gary Lineker skoraði sigurmarkið. Tottenham hafa sýnt á þessu tímabili að hlutirnir eru að breytast þannig að fyrsti úrvalsdeildarsigur gegn Man Utd er ekki jafn ólíklegur og menn hefðu haldið, samt sem áður er Old Trafford meðal erfiðustu útivalla í deildinni og gengur fáum liðum vel þar. OÓJ
Hópur Spurs: Robinson, Fulop, Pamarot, Ifill, King, Naybet, Gardner, Edman, Ziegler, Carrick, Brown, Marney, Redknapp, Pedro Mendes, Ricketts, Defoe, Keane, Kanoute og Yeates.