Calum Davenport verður að öllum líkindum lánaður til Southampton út þetta tímabil, s.k. heimasíðu Tottenham. Félagið er að bíða þess að skrifstofur úrvalsdeildarinnar opni á ný á morgun til að ganga frá lánssamningnum. Davenport var keyptur frá Coventry í Ágúst og fór stuttu eftir það til West Ham í láni. Hann kom síðan til baka og kom einu sinni inn á sem varamaður gegn Aston Villa. Frank Arnesen segir þetta vera góðan samning sem geri Davenport kleift að fá reynslu í úrvalsdeildinni eins fljótt og hægt er. OÓJ






