Carrick líklega seldur

0
592

Félagaskipti Michael Carrick til Man Utd virðast loksins ætla að ganga í gegn eftir mikla umræðu síðustu vikur. Kaupverðið er talið vera um 15 milljónir punda en það er talsverður gróði fyrir Spurs sem keyptu hann á 2,75 milljónir fyrir 2 árum.

Félögin gáfu út yfirlýsingu í kvöld þar sem fram kom að komist hefði verið að samkomulagi um kaupverðið og að leikmaðurinn ætti aðeins eftir að ganga frá sínum samningsmálum og gangast undir læknisskoðun.

Þó svo að Spurs séu að missa einn mikilvægasta leikmann sinn þá er ekki hægt að segja annað en að söluveriðið sé gott. Það eru ekki margir í dag sem græða á leikmönnum í peningadrifnu umhverfi fótboltans.

Flestir höfðu nú ekki trú á að Carrick færi þar sem hann er einn af lykilmönnum ungs og upprennandi liðs. En kannski er æskudraumur að ræstast hjá honum, maður veit ekki!

En ljóst er að nú þarf Martin Jol að fylla í skarð Carrick á miðjunni. Nóg er af miðvallarleikmönnum hjá félaginu eins og er en hver kemur inn? Verður maður keyptur? Það er spurningar sem líklegast við fáum ekki svör við fyrr en í fyrsta leik tímabilsins gegn Bolton.