Á föstudag var undirritaður samstarfsamningur við Express Ferðir um ferðir á leiki Tottenham. Samningurinn felur í sér að við munum vinna með Express ferðum að hópferðum á leiki Tottenham og einnig bjóða flug og hótel pakka fyrir félagsmenn okkar sem kaupa miða í gegnum klúbbinn.
Nú þegar er hafinn undirbúningur að hópferð á leik Tottenham og Fulham sem verður 17. september nk.
Nánari upplýsingar um þá ferð verða settar hér inn á næstu dögum.
Fleiri ferðir eru í bígerð og um að gera að fylgjst með því hér á síðunni. Við í stjórn klúbbsins hvetum félagsmenn til að skipta við Express ferðir þegar þeir fara til London eða annað, hvort sem er í fótboltaferð eða annað. Stjórn klúbbsins telur þennan samning muni nýtast klúbbnum og félögum hans mjög vel í sambandi við ferðir á leiki. Fleiri atriði eru innifalin í þessu samstarfi og verður skýrt frá þeim þegar þar að kemur.
Fylgist því með hér á síðunni á næstu dögum. Hægt er að fá frekari upplýsingar á miðar@spurs.is






