Ekki fyrsti dómaraskandallinn á Old Trafford

0
692

Man Utd 0-0 Spurs
Það virðist vera sama hvaða dómari komi að leikjum Man Utd, lánið virðist alltaf leika við þá. Þó svo að þeir hafi átt meirihluta leiksins þá verður ekki komist hjá því að líta á ákvörðun dómarans undir lok leiksins sem rán að hálfu Spurs. Man Utd áttu mun fleiri færi en Spurs í leiknum en þó tók Keane nokkrar góðar rispur, hann hafði bara engan stuðning en gerði þó sitt besta.  Marney var duglegur, Carrick lék mjög vel og Mendes er að verða lykilmaður liðsins. Í vörninni var Ledley King framúrskarandi og þeir sem hafa gagnrýnt Paul Robinson geta étið sín eigin orð. Martin Jol er sáttur við jafntefli en í viðtali eftir leikinn var ljóst að pirringur hans var gífurlegur, meira að segja Alex Ferguson sagði að þetta hafði verið léleg ákvörðun hjá dómaranum. En þegar allt kemur til alls er þetta áttundi leikur Spurs í röð án taps og frábær frammistaða á erfiðasta útvelli deildarinnar. OÓJ
Maður leiksins: Paul Robinson
Lið Spurs: Robinson; Pamarot, Naybet, King, Edman; Ziegler, Mendes, Carrick, Ricketts (Gardner, 89), Marney; Keane. Varamenn: Fulop, Bunjevcevic, Yeates og Ifil.