Varaliðsleikur: Tottenham-Southampton 0-5
Jol byrjaði með þrem tapleikjum. Við vitum öll framhaldið. Við skulum vona að framhaldið verði svipað hjá Emil okkar Hallfreðssyni en varaliðið tapaði gegn sterku varaliði Southampton 0-5 í kvöld. Emil lék allan leikinn og átti góða fyrirgjöf í lok fyrri hálfleiks og skot skömmu síðar sem fór af varnarmanni og rétt útaf.
Emil og Yeates voru hættulegastir í liði Spurs á þeim tíma með fjölda fyrirgjafa. Þá gerðist það í fimmta markinu að boltinn fór í Emil þegar verið var að hreinsa frá og boltinn við það dottið fyrir lappirnar á leikmanni Southampton sem skilaði honum í markið. Þetta er versta tap varaliðsins í vetur og vonandi að það taki sig á í næstu leikjum. Næsti leikur varaliðsins er 18. jan. gegn Crystal Palace á útivelli.
Liðið: Fulop, Ifil, Bunjevcevic, O’Hara (McKenna, 59), Richards, Defendi, Limbersky, Yeates, Barnard, Silva Sousa (Malcolm, 68), Hallfredsson. Subs: McKie, Eyre, Lee. HJ






