Ekki tókst það í þetta sinn

0
792

Tottenham-Chelsea 0-2
Lið Tottenham hefur sýnt áþreifanleg batamerki á undanförnum vikum. Samt erum við einhvern veginn en að bíða eftir að allt fari í fyrra horf þar sem liðið tapar samfærandi fyrir betri liðum og klúðrar málum gegn lélegri liðum. En unanfarnir leikir hafa farið á allt annan veg. Everton leikurinn átti að vera fyrsta prófraun á hvar við stæðum gegn bestu liðunum. Við unnum 5-2. Þá kom leikur á OT við Man. Utd. og þar náðu þeir jafntefli með hjálp línuvarðar þó svo að tölvert mæddi á okkar mönnum. Í gær var svo komið að stærstu prófrauninni en það var heimaleikur gegn Chelsea. Niðurstaðan var tap 0-2 en við vorum jafnokar þeirra í öllum leiknum og það þurfti vafasaman vítadóm (dómarar enn einu sinni) til að kom þeim yfir. Smertin steig á fótinn á King og hendi sér svo fram fyrir sig með tilþrifum sem Doll dómari keypti samstundis og dæmdi víti. Chelsea menn segja auðvitað að þeir hefðu átt að fá fleiri víti en ég er ekki sammála því. Enda skiptir það oft sköpum að fá svona með sér og geta svo varist (sett liðsrútuna fyrir markið). Seinna mark þeirra kom í uppbótatíma þegar við vorum búnir að setja nánst allt liðið í sókn til að ná öðru stiginu. Flestir okkar manna voru að spila vel og næstu leikir verða áhugaverðir því þá reynir á að láta þetta tap ekki slá okkur út af laginu heldur koma í næstu leiki tvíefldir og hefja sigurgöngu á ný. Það staðfestir að liðið sé á réttri braut.
Liðið: Robinson; Pamarot (Marney 71), Edman, King, Naybet; Mendes (Yeates, 77), Brown, Carrick, Ziegler (Gardner, 66); Keane, Defoe. Varamenn: Fulop, Kelly. HJ

DEILA
Fyrri fréttEmil lék sinn fyrsta leik
Næsta fréttEmil lék vel