Hundraðasti Evrópuleikurinn

0
606

Í kvöld kl. 18:00 að íslenskum tíma mun Tottenham leika sinn hundraðasta leik í Evrópukeppni frá upphafi. Andstæðingarnir eru Slavia Prag frá Tékklandi. Leikurinn fer fram í Tékklandi og verður sýndur beint í Ölveri.
Þess má geta að fyrsta leik sinn í UEFA keppni spilaði Tottenham hér á landi þann 14. september 1971 eða fyrir akkúrat 35 árum. Tottenham hefur tvisvar unnið UEFA keppnina.