Versta byrjun í 10 ár

0
517

Ekki snerist gæfa Spurs við um helgina þegar liðið mætti Man Utd á Old Trafford. Leikurinn fór 1-0 fyrir heimamönnum en fyrir utan markið, sem kom í fyrri hálfleik, voru liðin frekar jöfn.

Markið var afleiðing aukaspyrnu sem Ronaldo tók af 30 metra færi, en boltinn rásaði talsvert í loftinu og er erfitt að kenna markverðinum um markið. Boltinn barst á Ryan Giggs sem skallaði boltann yfir Robinson í slánna og inn.

En þrátt fyrir að fá á sig mark snemma leiks héldu Spurs baráttunni áfram og áttu 2 hættuleg færi í seinni hálfleik sem ekki tókst að nýta. Tveir leikmenn léku sinn fyrsta leik fyrir Spurs, þeir Hossam Ghaly og Pascal Chimbonda og stóð sá síðarnefndi sig mjög vel á meðan Ghaly var kannski ekki alveg í takt við hraða leiksins.

Nú er bara að vona að liðið komist á sigurbraut sem fyrst enda mikilvægt að missa ekki af lestinni í upphafi tímabils.

Lið Spurs: Robinson, Chimbonda, Dawson, King (Murphy 81), Assou-Ekotto, Jenas, Zokora, Davids (Ziegler 57), Ghaly, Keane (Defoe 57), Mido. Á bekknum: Cerny og Huddlestone.