Emil lék vel

0
960

Varaliðsleikur: Crystal Palace – Tottenham 1-1
Emil lék sinn annan leik með varaliði Tottenham í gærkvöldi og þá lék Simon Davies í 45 mínútur en það er hans fyrsti leikur í langan tíma eftir meiðsli og vírus sem herjaði á hann. Liðin voru nokkuð jöfn í leiknum og jafntefli því nokkuð samgjörn úrslit. Emil lék á miðjunni í þessum leik og hann stóð sig mjög vel þar eftir því sem fréttir herma. Limbersky var felldur í teig Palace, í byrjun seinni hálfleiks, eftir að hann hafði tekið við 40 metra sendingu frá Emil og Barnard skoraði úr vítinu sem dæmt var. Því miður náðu Palace menn að jafna og þar við sat.
Liðið: Eyre; Kelly (Kyriacou, 69), Richards, Defendi, McKie; Davies (Price 45), Bunjevcevic, Hallfredsson, Limbersky; Barnard, Malcolm.
Varamenn: Mascarenhas, Yeates. HJ