Tottenham hefur tilkynnt að það er í viðræðum við Egyptska sóknarmanninn Mido. Hann leikur núna með Róma en hefur lítið fengið að spreyta sig þar. Hann er 21 árs 190 á hæð. Við höfum verið að leyta að srtórum og sterkum sóknarmanni en það sást vel gegn Chelsea að við söknuðum Kanoute í þeim leik og þegar við reyndum að fá eitthvað út úr leiknum þá höfðum við engan annan mögueika en að setja King fram. Þó hann hafi aldrei leikið þessa stöðu var greynilegt að hann olli varnarmönnum Chelsea vandræðum þó við höfðum ekki getað nýtt það sem skyldi. Ekki er vitað hvort hann verður keyptur eða fenginn að láni út tímabilið. Ef hann er til framtíðar þá verðum við væntanlega í vandræðum áfram meðan Ramadan stendur þar sem ég tel líklegt að hann sé Múslimi. Það á þó eftir að koma í ljós. HJ






