Tottenham-Fulham 0-0

0
569

Ekki fengu ferðalangar í klúbbferðinni að sjá mörk að þessu sinni. Þó ferðin hafi tekist vel í alla staði vantaði þó það sem menn komu til að sjá, sigur á Fulham.
En að leiknum.

Eftir góða frammistöðu li Evrópuleiknum í Prag héldu markir að Tom Huddlestone héldi sæti sínu en það var öðru nær. Hann hefur ekki spilað síðan. Danny Murphy var settur í byrjunarliðið og Keane kom inn í stað Defoe. Það var ljóst að Fulham kom til að verjast og ná öðru stiginu og það tókst þeim. Þrátt fyrir að hafa lent ótal sinnum í því að spila gegn svona uppstillingu síðasta vetur hefur okkar mönnum ekki tekist að taka skrefið uppá við og finna lausn á þessu vandamáli. Vonandi verður það fljótlega. Það er fátt að segja um leik okkar manna. Við erum í lægð hvað spilamennsku og úrslit verðar og það þýðir að sjálfstraustið er í lámarki. Þó er ljóst að vörnin var að virka mjög vel en miðja og sókn eru úti að skíta.
Liðið: Robinson, Chombonda, Dawson, King, Ekotto, Jenas, Murphy (Davids 79), Zokora, Tainio (Defoe 69), Keane, Mido. Varamenn: Cerny, Lee, Huddlestone.