Liverpool-Tottenham 3-0

0
564

Þrátt fyrir að okkar menn stæðu í Liverpool megnið af leiknum fór sem fór. Flestir segja að vendipunkturinn hafi verið þegar Jenas tókst ekki að skora fyrir opnu marki og Púlarar fóru upp völlinn og skora okkar megin. Það er sennilega rétt að þetta var vendipunktur. En ég held að aðal málið sé að enn er sóknin og miðjan að klikka. Það er ekki sami viljinn og baráttan og við þó sáum oft á síðasta tímabili. Dæmi um það er þegar Defoe sem er að berjast fyrir sæti sínu í liðinu allt að því skokkaði á eftir bolta sem kom innfyrir og Reyna náði auðveldlega því Defoe lagði ekki í baráttuna um boltann. Einhverntíma hefði maður séð Defoe skjótast á eftir þessum botla og verða á undan í hann, en ekki í gær. Ég veit að ég er svo sem ekki sérfróður um fótbolta umfram það sem ég sé sem áhorfandi en mér finnst skrítið að það skuli ekki í mörg ár hafa verið hægt að ákveða það fyrir leiki hver eða hverjir eiga að taka horn og aukaspyrnur (undantekning Carrick á síðsta tímabili en hann var skelfilegur og því miður tóku Jol & Co ekki eftir því). Árangur Tottenham úr föstum leikatriðum er líka skelfilegur. Eins og í Fulham leiknum var vörnin traust í rúman klukkutíma en hrundi svo sem ég held að megi rekja til þess að Edgar nokkur Davids kom inná. Hann bjó til færið sem Jenas klúðraði en eftir það gerði hann ekkert annað en að missa boltann til andstæðinga sem kostuðu hraða sókn á okkur. Það er ljóst að Jol verður að finna lausn og það strax.
Liðið: Robinson, Chimbonda, Dawson, King, Ekotto, Jenas, Murphy (Mido 79 ), Zokora, Tainio (Davids 60), Defoe, Keane. Varamenn: Cerny, Huddlestone, Lee.

DEILA
Fyrri fréttTottenham-Fulham 0-0
Næsta fréttSpurs 1-0 Slavia