Tottenham komust áfram á UEFA keppninni á fimmtudagskvöldið þegar Slavia frá Prag voru lagðir af velli 1-0, og 2-0 samanlagt. Mark Spurs var skorað af Robbie Keane en þetta var fyrsta mark hans á tímabilinu.
Spurs voru án efa betra liðið í leiknum en eins og í síðustu leikjum hefur árangur liðsins við vítateig andstæðinganna verið frekar dapur. Mörg góð færi voru sköpuð í fyrri hálfleik en engin þeirra voru nýtt.
Slavia hófu seinni hálfleikinn vel og ógnuðu marki Spurs töluvert um tíma en án árangurs. Markið kom síðan loksins 10 mínútum fyrir leikslok þegar Robbie Keane skoraði eftir að Hossam Ghaly, sem kom inn á sem varamaður, skallaði boltann fyrir fætur hans.
Vonandi á þessi sigur eftir að vera kveikjan að tímabilinu. Hingað til hafa leikmennirnir verið í dvala og nú er kominn tími til að vakna og ekki er hægt að biðja um betri byrjun en heimaleik gegn Portsmouth, sem hafa aldrei unnið á White Hart Lane í Úrvalsdeildinni.
Lið Spurs: Robinson 7, Chimbonda 7, Dawson 6, Davenport 5, Young-Pyo Lee 5, Jenas 8, Murphy 7 (Ghaly 71, 8), Zokora 7, Ziegler 6 (Tainio 63, 6), Keane 7, Mido 5. Ónotaðir varamenn: Cerny, Huddlestone, Ifil, Assou-Ekotto, Charlie Lee.






