Berbatov á möguleika

0
690

Samkvæmt fréttum frá Tottenham í dag á búlgarski framherjinn Dimitar Berbatov möguleika á að vera með í leiknum gegn Portsmouth á sunnudaginn. Einnig eru aðrir menn að ná sér af meiðslum á meðan Aaron Lennon og Anthony Gardner eru enn meiddir.

Jermain Defoe, Edgar Davids, Paul Stalteri og Ledley King eiga allir einnig möguleika á að vera með en þeir misstu allir af leiknum gegn Slavia Prag. Martin Jol hefur líka róað marga aðdáendur Spurs með því að tilkynna að King þurfi ekki að fara í aðgerð, líkt og sumir höfðu rætt um.

Steed Malbranque, Aaron Lennon og Antony Gardner eru ennþá frá en Malbranque er þó byrjaður að æfa á nýjan leik.

Hópurinn fyrir leikinn: Robinson, Chimbonda, Dawson, Davenport, Young-Pyo Lee, Jenas, Murphy, Ghaly, Zokora, Ziegler, Tainio, Keane, Mido, Cerny, Huddlestone, Ifil, Assou-Ekotto, Charlie Lee, King, Defoe, Stalteri, Davids, Berbatov.

DEILA
Fyrri fréttSpurs 1-0 Slavia
Næsta fréttSpurs á sigurbrautina