Langþráður sigur Tottenham kom loksins í gær þegar liðið vann Portsmouth á heimavelli, 2-1. Mörk Spurs komu bæði í fyrri hálfleik og voru það Danny Murphy og Jermain Defoe sem skoruðu. Sigurinn hífði Spurs úr botnsætum deildarinnar en liðið hafði byrjað daginn í fallsæti.
Danny Murphy skoraði fyrsta mark leiksins eftir rúmlega 40 sekúndur en markið var hans fyrsta fyrir félagið. Þetta var einmitt byrjunin sem Spurs þurftu og áttu Portsmouth mjög fá færi allan fyrri hálfleikinn.
Ledley King kom aftur inn í byrjunarlið Spurs og var samvinna hans og Michael Dawson í miðri vörninni frábær eins og alltaf. Það kom hins vegar á óvart að Robbie Keane skyldi vera á bekknum en maðurinn sem kom í hans stað, Jermain Defoe, stóð sig vel og skoraði annað mark Spurs úr vítaspyrnu eftir rúmlega hálftíma leik.
Vítaspyrnudómurinn sjálfur var afar umdeildur en enginn vafi er um að Didier Zokra lét sig falla í teignum án þess að vera snertur af Pedro Mendes.
Portsmouth minnkuðu muninn skömmu síðar og staðan var 2-1 í hálfleik. Síðari hálfleikurinn var mun daufari en sá fyrri og voru markskot af skornum skammti.
En engu að síður var þetta góður sigur fyrir Tottenham og gæti þessi leikur markað upphafið af velgengni á þessu tímabili.
Lið Spurs: Robinson 8, Chimbonda 6 (Huddlestone, 7 45), Dawson 7 (Davenport 81), King 7, Assou-Ekotto 6, Jenas 6, Murphy 8, Zokora 7, Ghaly 5, Berbatov 7 (Keane 73), Defoe 8. Ónotaðir varamenn: Cerny og Mido.






