Það fór um einhverja Spursara þegar Port Vale komst yfir á 64. mínútu í leik okkar í deildarbikarnum í gærkvöldi. Reyndar er einhver spurning hvort um sjálfsmark Dawson sé að ræða en það skiptir ekki öllu. Yfirburðir okkar voru mikklir á vellinum en leikmenn Port Vale neituðu að gefast upp og var markmaður þeirra sérstaklega erfiður því hann átti að minnsta kosti einar sjö topp markvörslur. Aðalega frá Defoe.
Jol gerði aftur miklar breytingar á liðinu því aðeins Dawson hélt sæti sínu. Lennon, Berbatov og Ghaly voru svo á bekknum af liðinu sem spilaði gegn Chelsea. Steed Malbranque spilaði sinn fyrsta leik og tveir ungir leikmenn byrjuðu en það voru Andrew Barcham framherji úr varaliðinu og Dorian Dervite franski varnarmaðurinn sem kom í ágúst til liðsins. Þá lék Ifil aftur en hann hefur ekki komið við sögu aðalliðsins síðan hann spilaði nokkra leiki þá 16 ára 2004. Dervite stóð sig best af þessum. Steed var skipt útaf fyrir Lennon á 63. mínútu en mark Port Vale kom skömmu síðar. Steed stóð sig ekkert sérstaklega vel en það er lant síðan hann hefur spilað og hann þarf smá tíma. Maður leiksins var klárlega Tom Huddlestone sem gerði tvö mörk þau fyrstu fyrir félagið í aðalliðinu og hann á bara eftir að verða betri. Nýr Hoddle kannski? Leikurinn fór í framlengingu þar sem Hudd skoraði seinna sitt og Defoe kláraði svo málið eftir fína sendingu frá Ifil.
Liðið: Cerny; Ifil, Dawson, Dervite, Y-P Lee; Malbranque (Lennon, 63), Huddlestone, Davids, Murphy (Ghaly, 69); Defoe, Barcham (Berbatov, 66). Varamenn ónotaðir: Fulop; Ziegler.






