Emil snýr aftur

0
710

Mbl.is greinir frá því að Emil Hallfreðsson hafi ákveðið að snúa aftur til Tottenham eftir árs lán hjá Malmö í Svíþjóð. Hann segist hafa lært mikið á þessum tíma og telur sig nú betur undir það búinn að gera atlögu að aðalliði Tottenham. Emil lék 19 leiki með Malmö og gerði í þeim 5 mörk og þótti standa sig vel enda vildu menn þar á bæ halda honum til frambúðar.