Reading-Tottenham 3-1

0
588

Jólin komu snemma hjá Reading því í dag færði Tottenham þeim jólagjöf. Jol gerði aðeins eina breytingu á liðinu sem lék gegn Chelsea og það vegna meiðsla Chimbonda. Y.P.Lee kom inn í byrjunarliðið í hægri bakvörðinn.

Tottenham byrjaði betur og náði fljótt góðum tökum á leiknum. Sóknarþunginn leiddi svo til marks eftir að Ghaly var felldur í vítateig Reading. Keane tók vítið og skoraði. Nokkrum mínítum seinna mátti sjá jafn glöggt og hefðu flóðljós á fótboltavelli verið tekin úr sambandi að slökknaði á leikmönnum Tottenham. Eins og hendi var veifað fóru leikmenn okkar að spila eins og byrjendur, og Redaing gekk á lagið og gerði þrjú mörk áður en yfir lauk. Ekki erfitt þegar haft er í huga að leikmenn Tottenham vour í huganum laungu farnir heim enda búnir að gera þetta eina mark og töldu sig þá búna í vinnunni. Ég get ekki fundið einn einasta leikmann sem gerði eitthvað þess vert að nefna það. Því miður. Tottenham leikmenn hafa sýnt það áður að svona áfall hefur vakið þá af værum blundi og þeir komið dýrvitlausir í næstu leiki. Við skulum bara vona að það gerist eftir þetta slys í dag og við sjáum nýja sigurgöngu hefjast á öllum vígstöðvum.
Liðið: Robinson, YP Lee (Huddlestone, 67), Dawson, King, Assou-Ekotto, Lennon, Jenas, Zokora (Defoe, 67), Ghaly, Keane, Berbatov. Varamenn: Cerny, Murphy, Ziegler.  

DEILA
Fyrri fréttSpurs fengu Southend
Næsta fréttBlackburn 1-1 Spurs