Blackburn 1-1 Spurs

0
770

Leikur Blackburn og Tottenham á Ewood Park í dag var frekar tíðindalítill í fyrri hálfleik, en síðari hálfleikurinn var heldur betur fjörugur.

Leikurinn fór 1-1 og skoruðu Spurs jöfnunarmarkið úr vítaspyrnu í seinni hálfleik. Spyrnuna fengu þeir þegar Tugay, markaskorari Blackburn, braut á Hossam Ghaly um miðjan seinni hálfleikinn. Tugay fékk rautt og Jermain Defoe skoraði úr vítaspyrnunni.

Tugay hafði komið heimamönnum yfir í fyrri hálfleik með stórkostlegu marki og var það eina markskot Blackburn í mjög döprum fyrri hálfleik. Spurs áttu engin hættuleg færi sjálfir en þó jókst pressan eftir því sem leið á hálfleikinn.

Eftir jöfnunarmarkið hefði maður búist við stórsókn frá leikmönnum Tottenham, en ekkert breyttist og mátti varla sjá mannamuninn á liðunum. Jermain Defoe barðist einna mest í liði Spurs en honum var samt skipt útaf 10 mínútum fyrir leikslok.

Hossam Ghaly fékk síðan að líta rauða spjaldið í uppbótartíma fyrir olbogaskot, en brottreksturinn var vafasamur, líkt og brottrekstur Tugay. Ef til vill notaði dómarinn tækifærið til að jafna hlutina út.

Semsagt, enn einn svekkjandi útileikurinn fyrir Spurs og mega þeir fara að líta í eiginn barm hvað varðar leiki á útivelli. Það er eins gott, því næsti útileikur er gegn Arsenal.

Lið Spurs: Robinson 6, Lee 6, Dawson 7, King 7, Assou-Ekotto 6, Ghaly 6, Zokora 4, Huddlestone 7, Davids 7 (Malbranque 46, 5), Defoe 7 (Berbatov 83), Mido 5. Ónotaðir varamenn: Cerny, Keane, Murphy.

DEILA
Fyrri fréttReading-Tottenham 3-1
Næsta fréttSpurs 3-1 Wigan