Spurs komust upp í 10. sæti deildarinnar í dag með 3-1 sigri á Wigan á White Hart Lane. Mörk Spurs gerðu þeir Jermain Defoe, Dimitar Berbatov og Aaron Lennon.
Martin Jol gerði tvær breytingar á liðinu sem lagði Leverkusen í vikunni, Tainio og Keane duttu út fyrir Huddlestone og Defoe. Enn ein breytingin á framherjunum en Jol hefur mátt sæta gagnrýni þess vegna.
Spurs léku vel framan af og voru hættulegri aðilinn til að byrja með. Marktækifærin voru þó fá og lentu Spurs undir um miðjan hálfleikinn. Varnarmennirnir virtust einfaldlega slökkva á sér og gerði það Wigan kleift að skora frekar einfalt mark eftir fyrirgjöf.
Spurs brugðust samt vel við og hófu loksins að sækja af einhverjum krafti og ber þar hæst að nefna gott spil milli Zokora og Malbranque sem endaði með að markvörður Wigan varði vel í tvígang frá Malbranque og Defoe.
Jöfnunarmarkið kom rétt fyrir hálfleik og á Berbatov mikið hrós skilið fyrir það mark, en móttaka hans og sending voru frábær. Defoe fékk boltann síðan í teignum, lék á varnarmanninn og skoraði sitt 50. mark í 100. leik sínum fyrir Spurs.
Leikmenn Spurs bættu síðan öðru marki við mínútu síðar og var það Berbatov sjálfur sem skoraði það eftir glæsilegan einleik og skot efst í markhornið. Þessi mörk voru afar mikilvæg og settu þau Wigan gjörsamlega útaf laginu.
Spurs héldu sinni góðu spilamennsku áfram eftir hléið en eins og áður voru marktækifærin fá. Spilið var oft á tíðum fyrirsjáanlegt en dreifingin á spilinu er oft frekar slæm.
Wigan ógnuðu marki Spurs í lokin en varamaðurinn Emile Heskey olli varnarmönnum Spurs nokkrum áhyggjum. Lokamark Spurs kom síðan í uppbótartíma þegar Berbatov átti enn og aftur gott hlaup upp kantinn sem endaði með sendingu á Aaron Lennon sem setti boltann örugglega í markið og gerði út um leikinn.
Þegar litið er á leikinn sem heild má sjá margt gott í leik Spurs, en þó voru þeir óþarflega lengi að skora þriðja markið. Miðað við hve mikið þeir höfðu boltann og þá leikmenn sem voru inn á þykir manni ótrúlegt að þriðja markið geti ekki komið fyrr. Það mark gerir út um leikinn í stað þess að veita andstæðingunum von fram á síðustu sekúndurnar.
Ef leikmennirnir geta fundið þetta "killer instinct" þá er ekki vafi um að liðið sigli upp töfluna.
Lið Spurs: Robinson 8, Chimbonda 7, Dawson 7, King 6, Assou-Ekotto 7, Lennon 7, Huddlestone 7, Zokora 6, Malbranque 6, Berbatov 9, Defoe 8 (Keane 83). Ónotaðir varamenn: Cerny, Lee, Davids, Murphy.






