Crystal Palace – Spurs 3-0

0
801

Leikurinn á laugardag kom okkur aftur niður á jörðina eftir ágæta flugferð sem staðið hefur yfir frá því í nóvember. Stórt tap gegn liði sem var í sautjánda sæti fyrir leikinn sýnir okkur að enn vantar tölvert upp á að stöðugleika sé náð. Liðið lék ílla í leiknum og mjög slæmur kafli í seinni hálfleik kostaði þrjú mörk. Til að bæta gráu ofan á svart meiddist Ziegler undir lok fyrri hálfleiks en það var þó bót í máli að við vorum að endurheimta Atouba úr meiðslum. Mig grunar að helsta ástæða tapsins sé sú að við vorum að spila við eitt af lélegustu liðunum eftir að hafa spilað við þrjú af fjórum efstu í leikjum á undan og menn hafi talið að hægt væri að slaka á í þessum leik ásamt því að liðið hefur orðið fyrir miklum vonbrigðum í Utd. og Chelsea leikjunum vegna slakrar dómgæslu sem hefur kostað okkur stig. Við ættum að senda spólu af leik okkar við Tékka í handboltanum í gær til Tottenham og segja þeim að svona eigi að gera það. Ef maður lendir undir og allt í basli þá sé bara að girða sig í brók og taka á því. Vonandi sjáum við það í næstu leikjum því annars rennur von okkar um Evrópu aftur út í sandinn.
Liðið: Robinson; Pamarot (Yeates, 72), Edman, King, Naybet; Marney (Kelly, 82), Mendes, Carrick, Ziegler (Atouba, 43); Keane, Defoe. Varamenn: Gardner, Eyre. HJ