Átján ára liðið komið í fimmtu umferð

0
708

Átján ára lið Tottenham sló út Liverpool á Anfield í gærkvöldi í vítaspyrnukeppni eftir að leikurinn endaði 1-1 eftir venjulegan leiktíma og framlengingu. Andy Barckam gerði mark okkar í leiknum og þess má geta að hann gerði líka sigurmark okkar í umferðinni á undan gegn Nottingham Forest. Lokatölur 2-4 fyrir okkar stráka. Hetja liðsins var markmaðurinn Tommy Forcast en hann varði tvær vítaspyrnur. O’Hara, Ifil, Lee og Thyer skoruðu úr sýnum vítum. Það má segja að guttarnir hafi sýnt þeim eldri hvernig vinna á Liverpool í vítaspyrnukeppni en við féllum úr leik í deildarbikarnum gegn Liverpool í desember. Tottenham mætir Everton á heimavelli í næstu umferð.
Liðið: Tommy Forecast, Phil Ifil, Mark Wright, Stuart Lewis, Leigh Mills, Charlie Lee, Jamie Davis (Richard Heller, 112), Simon Dawkins (Radwan Hamed, 84), Andy Barcham, Jamie O’Hara, Joe Martin (Scott Thyer 58). Varamenn: David Button (GK), Chris Riley. HJ

DEILA
Fyrri fréttEmil lék vel
Næsta fréttCrystal Palace – Spurs 3-0