Í kvöld léku Dinamo Bukarest við Bayer Leverkusen og Besiktas við Club Brugge. Báðir leikirnir fóru 2-1 fyrir heimaliðið. Það verður því hörku leikur þann 14. des. á White Hart Lane gegn D. Bukarest um efsta sæti riðilsins. Við getum ekki farið neðar en í annað sætið.
Staðan í riðlinum er þessi eftir leiki kvöldsins:
Tottenham 9 stig eftir 3 leiki
D. Bukarest 7 stig eftir 3 leiki
Besiktas 3 stig eftir 3 leiki
Club Brugge 2 stig eftir 4 leiki
Bayer Leverkusen 1 stig eftir 3 leiki
Club Brugge er búið með sína leiki og Besiktas á eftir að sækja Leverkusen heim. Liðin sem hafa tryggt sér áframhaldandi veru í keppninni eru utan við Tottenham, Glasgow Rangsers, Maccabi Haifa, Dinamo Bukarest, AZ Alkmaar, Selvilla, Parma og Newcastle.
Þau lið sem eru núna að reyna að ná þriðja sæti í sínum riðlum og gætu dregist á móti okkur að því gefnu að við náum jafntefli eða vinnum gegn Bukarest eru: AJ Auxerre, Liverno, Slovan Liberec, Sporting Braga, Lens, Osasuna, Odense og Heerenveen.
Á morgun leika liðið í E, F, G og H riðlum og mun ég uppfæra þessa frétt eftir þá. Ekki er orðið nógu skýrar línu í Meistaradeildinni til að spá í hvaða lið fara yfir í UEFA keppninna og gætu þá dregist gegna okkur skyldum við tapa þann 14. des.






