Jol: Ég sel ekki Defoe

0
724

Martin Jol virðist vera búinn að kæfa allar sögusagnir um að Jermain Defoe muni yfirgefa félagið í janúar. Jol sagði í viðtali við dagblað í London að ekki kæmi til greina að selja leikmann sem er jafn mikilvægur og Defoe.

Mikið hefur verið rætt um stöðu Defoe undanfarnar vikur en hann hefur þurft að verma varamannabekkinn oft á þessu tímabili. Jol hefur alltaf sagt að baráttan milli framherjanna sé liðinu góð en frammistaða þeirra ber þess ekki merki.

Jol sagði: „Jermain er ekki að fara neitt. Ég er ekki að fara selja mann sem leikur mikilvægt hlutverk í baráttu okkar í deildinni, Carling Cup og UEFA bikarnum.”

„Það mun alltaf vera einhver umræða í kringum menn eins og Defoe þegar líður að félagaskiptaglugganum. Hann er mjög mikilvægur og fólk áttar sig ekki á því að hann hefur byrjað 6 af síðustu 9 leikjum á meðan Robbie (Keane) er ekki búinn að byrja nema 3 leiki af síðustu 9.”

„Og ekki er talað um að hann vilji fara, þannig að þetta er ekkert sem við ráðum við,” sagði Jol við Evening Standard.

Búist er við að Defoe haldi sæti sínu í liðinu fyrir Norður-Lundúna slaginn gegn Arsenal á laugardaginn.