Í dag var gengið frá samningi við Sunderland um kaupin á markverðinum Ben Alnwick. Sem hluti samningsins mun Marton Fulop ganga til liðs við Sunderland, en hann fór þangað í láni fyrir fáeinum dögum.
Alnwick er 19 ára Englendingur sem er í U-21 árs landsliðinu, en hann mun koma til félagsins formlega í janúar.
Auk Fulop munu Spurs greiða 1 milljón punda fyrir Alnwick.






