Arse**l-Tottenham á morgun laugardag

0
628

Jæja þá er það fyrsti leikur okkar á nýja vellinum þeirra "Öskuhaugunum". Þetta veður án efa hörku viðureign eins og alltaf milli þessara liða. Útileikjaformið okkar hefur verið lélegt en það má segja að þeirra árangur að undaförnu hafi ekki verið góður. Þeir hafa gert tvö jafntefli og unnið einn í síðustu þerm heimaleikjum og tapað þrem síðustu útileikjum. Við höfum gert tvö jafntefli og tapað einum af síðustu þrem útileikjum. Arse**l hafa aðeins unnið þrjá af sjö heimaleikjum sínum á nýja vellinum. Gallas verður sennilega frá og Henry er tæpur. Senderos er í banni. Svo má taka undir með Wenger að uppröðun leikja er auðvitað óréttlát í hans garð þar sem þeir spiluðu í vikunni en við ekki. (hahaha).
Jenas verður í hópnum hjá okkur. King fékk magakveisu en verður væntanlega með. Stalteri, Gardner og Mido eru meiddir og Ghaly er í leikbanni. Leikurin n á síðasta tímabili fór 1-1.
Leikurinn hefst kl. 12:45 á morgun laugardag og um að gera að mæta í Ölver þeir sem eru á höfuðborgarsvæðinu.