Rússibaninn heldur áfram

0
582

Í dag fóru leikmenn Tottenham aftur með okkur í tilfinningadýfu (bratta) eftir góðan leik á sunnudaginn gegn Wigan. Eitt er víst að Jol er bara ekki að ná að búa til samfærandi lið úr þessum hóp.

hann gerði tvær breytingar á liðinu með því að taka Defoe og Hudd út og setja Keane og Tainio inn. Fyrstu mínúturnar voru bara nokkuð góðar af okkar hálfu og tvö færi litu dagsins ljós hjá okkur. en þá kom mark á okkur sem margir vildu meina að væri rangstöðu  mark en er það sennilega ekki út frá því að framherjinn eigi að njóta vaafans. Vandinn er bara sá að línuverðir (hvað hefur Defoe ekki lent oft í því) dæma nánast alltaf vörninni í vil.
Eftir markið komust þeir meir og meir inn í leikinn og það verður að segja að við gáfum þeim alla möguleika á að spila eins og þeir gerðu. Undir lok hálfleiksins fengum við svo á okkur víti sem var ekki víti en erfitt að sjá það. Jol gerði tvær breytingar í hálfleik sem menn spurðu sig hvernig hann réttlætti, ekki þá sem komu inn heldur að taka Steed af velli þegar nær hefði verið að taka Zokora sem var skelfilegur í dag. Ekotto var réttilega settur út fyrir Lee. Þetta breytt litlu en Jenas kom þó með kraft fram á við og eins Lee. Náðarhöggið kom svo í seinni hálfleik þegar annað víti var dæmt á okkur þegar eins hefði átt að dæma hendi á Persie eða aukaspyrnu á okkur fyrir utan vítateig. Þessi leikur vannst á miðjunni að mínu viti. Vörn þeirra var vængstífð en miðjumenn okkar komust ekkert áleiðis gegn miðju þeirra og því reyndi lítið á veika vörn þeirra. Eins og oft áður sértaklega á útivelli vorum við staðir, hugmyndalausir og klaufskir og gerðum þeim alltof auðvelt fyrir.
Ef Jol fer ekki að finna lausn á þeim veikleikum sem eru í liðinu þá sé ég hann ekki fyrir mér í þessu starfi marga mánuði í viðbót. Það er ekki hægt að bíða endalaust. 
Liðið: Robinson, Chimbonda, Assou-Ekotto (YP Lee, 46), Dawson, King, Lennon, Zokora, Tainio (Defoe, 80), Malbranque (Jenas, 46), Keane, Berbatov. Varamenn: Cerny, Huddlestone.