Tveir nýjir framherjar

0
692

Staðfest var í gærkvöldi á heimasíðu Tottenham að búið er að gera lánssamning við Róma til 18 mánaða um Mido. Þá var einnig staðfest að búið er að kaupa 21 árs hollenskan strák sem á uppruna sinn í Marokkó. Hann heitir El Hamdaoui. Hann er einnig framherji og hefur leikið með undir 21 landsliði Hollands en hefur nú ákveðið að spila fyrir Marokkó. Mido er Egypti sem hóf feril sinn í Evrópu hjá Gent í Hollandi. Hann er stór og sterkur og sagður einn besti skallamaður í boltanum í dag. Það virðist loða við hann vandræða stimpill en Jol gerði lítið úr því og taldi það ekki rétt. Þá hafa forráðamenn Slavia Prague látið hafa eftir sér að markmaður þeirra Radek Cerny hafi verið lánaður til Tottenham í 18 mánuði. Það hefur ekki verið staðfest. Þó ég hafi ekki verið mikið fyrir að vera með slúður hér þá hafa blossað upp sögur um að við séum að landa einhverjum verulega stóru nafni. Tala menn þá helst um Shaun Wright Phillips og Keane fari upp í þau kaup. Svo hefur náttúrlega Beckahm verið nefndur. Það sem alla vega er rétt í þessu er að við höfum verið að leita að hægri kantara og SWP og Beckham passa þar. Með þessum nýju leikmönnum gætum við fórnað Keane því við höfum þá þennan Hollenska Marokkó strák og svo Lee Barnard. Þetta kemur allt í ljós. HJ