Nú er búið að fá til liðsins tékkneskan markmann. Hann heitir Radek Cerny og verður 31 í febrúar. Það er ekki alveg á hreinu hvort um lánssamning er að ræða eða kaup en samningurinn er til 18 mánaða. Radek kemur í stað Keller sem fór fyrr í janúar til Þýskalands. Það er ljóst að Frank og Jol telja ungu markmennina Burch, Fulop og Eyre ekki tilbúna og þetta gefur þeim tíma til að bæta sig meðal annars með því að fara til liða í neðri deildunum í láni. Við bjóðum Radek velkominn í liðið. HJ
Nýjustu fréttirnar
Hópferð Tottenhamklúbbsins – Nóvember 2026
Daginn Þá er komið að fyrstu hópferð Tottenhamklúbbsins á Íslandi tímabilið 2026-2027Farið verður á leik Tottenham - Ipswich sem verður á Tottenham Hotspur Stadium,...







