UEFA CUP í kvöld

0
784

                          Stórleikur á WHL í kvöld þegar Spurs tekur á móti Dinamo Bucharest frá Rúmeníu.   Kemur þessi leikur til með að skera úr um hvort liðið sigrar í riðlinum.  Að sigra riðilinn tel ég vera mjög mikilvægt til að sleppa við að mæta liðunum sem duttu út úr Meistaradeildinni í næstu umferð.

Það er annars að frétta úr herbúðum Spursara að Defoe er metinn 50/50 á að vera leikfær í kvöld.  Á við smávægileg hamstrings meiðsli að stríða.  Teemu Tainio hefur verið veikur meira og minna alla vikuna en ætti samt að vera klár í slaginn.  Jermaine Jenas er aftur á móti ekki leikfær. 

Líklegt byrjunarlið :  Robinson , Lee , Dawson , King , Chimbonda , Malbranque , Huddlestone, Zokora/Taino ,  Lennon ,  Mido , Berbatov.

Veðbankar setja á leikinn.

Spurs sigur 1/2              Jafntefli  13/5                 Dinamo sigur 9/2

Ég er að fara á völlinn í kvöld … og ætla ég að koma með umfjöllun um leikinn í kvöld eða fyrramálið.

Bio