Stórleikur á WHL í kvöld þegar Spurs tekur á móti Dinamo Bucharest frá Rúmeníu. Kemur þessi leikur til með að skera úr um hvort liðið sigrar í riðlinum. Að sigra riðilinn tel ég vera mjög mikilvægt til að sleppa við að mæta liðunum sem duttu út úr Meistaradeildinni í næstu umferð.
Það er annars að frétta úr herbúðum Spursara að Defoe er metinn 50/50 á að vera leikfær í kvöld. Á við smávægileg hamstrings meiðsli að stríða. Teemu Tainio hefur verið veikur meira og minna alla vikuna en ætti samt að vera klár í slaginn. Jermaine Jenas er aftur á móti ekki leikfær.
Líklegt byrjunarlið : Robinson , Lee , Dawson , King , Chimbonda , Malbranque , Huddlestone, Zokora/Taino , Lennon , Mido , Berbatov.
Veðbankar setja á leikinn.
Spurs sigur 1/2 Jafntefli 13/5 Dinamo sigur 9/2
Ég er að fara á völlinn í kvöld … og ætla ég að koma með umfjöllun um leikinn í kvöld eða fyrramálið.
Bio






