Dregið í UEFA í hádeginu í dag

0
769

Tottenham varð annað liðið í ár til að vinna alla leikina í riðlakeppni UEFA bikarsins (frásögn af leiknum kemur fljótlega). Hitt liðið var Espanyol. Dregið verður í 32 liða, og 16 liða úrslit klukkan 12 í dag. Hægt verður að fylgjast með drættinum á Eurosport og á netinu. Við munum dragast gegn einhverju liði sem endaði í þriðja sæti einhverra af hinum riðlum UEFA bikarsins í næstu umferð. 

Liðin sem til greina koma eru: Liverno frá Ítalíu, Sporting Braga frá Portúgal, Feyenoord frá Hollandi, Hapoel Tel-Aviv frá Ísrael, Fenerbahce frá Tyrklandi, Zulte Waregem frá Belgíu og Lens frá Frakklandi.

Lokastaðan í riðlinum varð:

Riðill 2 L U J T Mörk+ Mörk – +/ – Stig
Tottenham 4 4 0 0 9 2 7 12
Dinamo Bucurest 4 2 1 1 6 6 0 7
Bayer Leverkausen 4 1 1 2 4 5 -1 4
Besiktas 4 1 0 3 4 7 -3 3
Club Brugge 4 0 2 2 4 7 -3 2

HJ