Tveir frá Forest

0
679

Andy Reid og Michael Dawson hafa báðir skrifað undir samning við Tottenham. Þeir koma frá Nottingham Forest. Það vill svo skemmtilega til að við lendum gegn Forest í fimmtu umferð bikarsins ef við vinnum gegn WBA þann tólfta. Verðið hefur ekki verið gefið upp en heyrst hefur talan átta milljónir punda fyrir báða. Andy er írskur lansliðsmaður sem leikur aðallega á vinstri kantinum en Frank segir að hans geta bæti við lið okkar því hann geti einnig spilað hægra meginn og eins aftan við framherjana.
Michael Dawson er enskur miðvörður sem miklu lofi hefur verið ausið á. Ég hef heyrt að hann hafi átt í tölverðum meiðslum en vonandi er það allt að baki. Hann er tvítugur og það hefur verið sagt um hann að hann hafi verið nítján ára betri en Rio Ferdinand þegar hann var nítján. Við bjóðum þá báða velkomna í hópinn. HJ