Man City 1-2 Spurs

0
772

Fyrsti útsigur Tottenham á þessu tímabili varð að veruleika í dag með 2-1 sigri á Manchester City. Calum Davenport og Tom Huddlestone gerðu mörk Spurs í leiknum.

Tottenham hófu leikinn vel og þrátt fyrir að Aaron Lennon væri meiddur var sóknarleikurinn góður. Hossam Ghaly lék vel, Steed Malbranque lék sinn besta leik fyrir félagið hingað til og Tom Huddlestone hélt áfram að sýna mikla yfirvegun á miðjunni.

Spurs komust yfir snemma leiks þegar Calum Davenport skallaði aukaspyrnu Huddlestone í netið. Þetta var einnig fyrsta mark Davenprt fyrir Spurs.

Góður leikur Spurs hélt áfram og liðið leit út fyrir að geta skorað í hverri sókn, en staðan hefði auðveldlega geta verið betri en 2-0 í hálfleik.

Annað mark Spurs kom síðan skömmu síðar eftir skyndisókn. Berbatov og Ghaly léku saman og það var Ghaly sem átti sendingu frá hægri á Huddlestone sem tók boltann á lofti og hamraði hann í netið. Það var í raun bara spurning hvenær Tom myndi skora fyrir utan teig enda eru skot hans afar ógnvænleg.
Staðan var 2-0 í hálfleik en leikmenn City mættu einfaldlega ekki til leiks fyrstu 45 mínúturnar.

Síðari hálfleikurinn var hins vegar allt öðruvísi og sýndu City þá af hverju þeir voru ósigraðir á heimavelli fyrir leikinn í dag.

Þeim tókst að minnka muninn um miðjan hálfleikinn og var það Joey Barton sem skoraði markið. Eftir markið var mikil pressa á mark Spurs og óhætt að segja að Spurs hafi ekki komist fram yfir miðju í rúmt kortér.

Sem betur fer náði vörnin að verjast hetjulega og tryggja fyrsta útisigur Spurs í deildinni á þessu tímabili. Liðið skoraði líka í fyrsta skipti úr opnum leik á útivelli þegar Huddlestone skoraði, en öll önnur mörk Spurs á útivelli fram að því höfðu annaðhvort verið sjálfsmörk eða mörk út föstum leikatriðum.

Nú þegar liðið er búið að sigra fyrsta útileikinn er óskandi að þeir muni taka sig á og halda áfram að sýna hvað þeir geta ekki bara á White Hart Lane heldur líka á útivelli. Næsti leikur í deildinni mun reyna mikið á liðið, en það er útileikur gegn Newcastle á Þorláksmessu.

Maður leiksins: Tom Huddlestone

Lið Spurs: Robinson 6, Chimbonda 6, Davenport 7, King 7, Lee 6, Ghaly 6, Huddlestone 9, Tainio 7, Malbranque 8, Defoe 6 (Mido, 82), Berbatov 6. Ónotaðir varamenn: Cerny, Stalteri, Gardner og O’Hara.