Yfirlit: Hluti I

0
811

Nú þegar tímabilið er að verða hálfnað ákvað ég að setja saman stutt yfirlit yfir leik liðsins hingað til. Í þessum fyrsta hluta fer ég yfir markverði og varnarmenn. Næstu hlutar (miðja og sókn) munu síðan koma á komandi dögum.

Hverjum leikmanni er gefin einkunn á skalanum A til F, þar sem A+ er besta einkunnin og F lélegasta.

Paul Robinson B+
Robbo er búinn að vera frekar öruggur það sem af er tímabilinu, en þó hefur hann oft leikið betur. Síðan lenti hann í óskemmtilegu atviki í leik með landsliðinu sem jók pressuna á hann. En síðan þá hefur hann staðið sig frábærlega og sýnt af hverju hann er landsliðsmarkvörður Englendinga. Þá er engin markvörður sem ég hef séð með jafn frábærar sendingar fram völlinn, en þessar sendingar hafa leitt til tveggja marka í undanförnum leikjum.

Radek Cerny C
Radek hefur leikið nokkra leiki í Deildabikarnum og staðið sig með prýði. Hann er öruggur markvörður sem gott er að hafa á bekknum ef Robinson skyldi meiðast.

Pascal Cimbonda A+
Þegar Pascal var keyptur var ég ekki alveg viss hvort hann væri peningana virði en það tók hann aðeins 1 leik að sýna af hverju Spurs voru ólmir að kaupa hann. Leikur hans hingað til hefur verið frábær og í raun er ekkert hægt að setja út á frammistöður hans með liðinu. Baráttan er mikil, bæði sóknar- og varnarleikur hans er góður og svo er hann ógn í hornspyrnum.

Young-Pyo Lee B-
Lee spilaði ekki mikið í upphafi tímabilsins en eftir að Assou-Ekotto kom hefur hann þurft að berjast fyrir sæti sínu í liðinu. Mikið var talað um að Lee myndi yfirgefa félagið síðasta sumar en hann ákvað sjálfur að vera áfram og sér hann ekki eftir því. Lee átti marga góða spretti í liðinu í fyrra en varnarleikur hans var oft á tíðum vafasamur. En á þessu tímabili hefur hann bætt varnarleikinn ásamt því að vera áfram ógnandi á vinstri kantinum.

Paul Stalteri C
Paul hefur lítið leikið með liðinu vegna meiðsla og þegar hann hefur verið heill heilsu hefur hann þurft að verma varamannabekkinn. Paul er samt góður varamaður til að hafa ef Chimbonda meiðist en leikur hans með liðinu í fyrra versnaði þegar leið á tímabilið.

Michael Dawson A
Dawson og King eru búinir að mynda fyrsta alvöru varnarpar Spurs í mörg ár á þessu tímabili. Leikur Dawson hefur batnað mikið og hann er nú orðinn einn af mikilvægustu leikmönnum liðsins. Hann hafði leikið alla leiki liðsins þar til hann tók út leikbann gegn Man City. Michael var einnig valinn í enska landsliðið fyrr á þessu tímabili sem sýnir að hann vekur ekki bara athygli innan félagsins.

Ledley King B+
Fyrirliðinn er búinn að vera í vandræðum með meiðsli það sem af er tímabilinu en það virðist ekki hafa áhrif á leik hans hið minnsta. King er sem fyrr kletturinn í vörninni ásamt Dawson og hefur hann margoft elt sóknarmenn uppi og bjargað marki. Maður hefur það samt á tilfinningunni að hann spili hvern leik með einhver meiðsli en það er óskandi að hann nái sér sem fyrst. Jol er a.m.k. búinn að nýta öll tækifæri sem hann hefur til að hvíla King. Heill heilsu er King einn af bestu varnarmönnum Englands.

Calum Davenport B-
Davenport hóf tímabilið í byrjunarliðinu vegna meiðsla fyrirliðans en eftir leikinn gegn Aston Villa, þar sem hann nefbrotnaði og var rekinn útaf, hefur hann lítið verið með. Hann hefur hins vegar staðið sig prýðilega þegar á hann hefur verið kallað, en hann er nú án efa miðvörður númer 3 á undan Gardner.

Philip Ifil C
Phil er bara búinn að spila einn leik það sem af er tímabilinu en það var Deildabikarleikurinn gegn Port Vale. Hann stóð sog vel í þeim leik og lagði m.a. upp mark sem Jermain Defoe skoraði. Phil er framtíðarleikmaður liðsins sem mun líklega aðeins fá séns ef Chimbonda og Stalteri meiðast.

Anthony Gardner C-
Enn og aftur hafa meiðsli komið í veg fyrir að Gardner spili eitthvað með liðinu en hans eini leikur var í Deildabikarnum gegn MK Dons. Heill heilsu er hann góður varnarmaður en með King og Dawson í vörninni verður erfitt fyrir hann að komast í liðið án þess að einhver verði fyrir meiðslum.

Benoit Assou-Ekotto B
Það tók þenna unga leikmann nokkra leiki að aðlagast ensku deildinni en eftir smá erfiðleika í upphafi hefur hann spilað vel í stöðu vinstri bakvarðar. Hann átti samt afar slakan leik gegn Arsenal sem leiddi til þess að hann var ekki í hópnum í næsta leik. Staða hans í liðinu er því ekki örugg, en maður hefur það á tilfinningunni að Jol muni leyfa Assou-Ekotto og Lee að skipta með sér leikjum í stöðu vinstri bakvarðar.

DEILA
Fyrri fréttSpurs – Southend
Næsta fréttTottenham-Southend 1-0