Aaron Lennon verður að öllum líkindum frá vegna meiðsla annan leikinn í röð þegar Spurs heimsækja Newcastle, en hann mun ekki hafa náð sér fullkomlega eftir bólgu í hné. Hossam Ghaly og Didier Zokora snúa hins vegar aftur í liðið.
Þá mun fyrirliðinn Ledley King vera með en hann var hvíldur í Deildabikarnum gegn Southend sem og Pascal Chimbonda.
Martin Jol þarf að glíma við nokkur meiðsli eftir leikinn í vikunni, Edgar Davids (veikur) og Paul Stalteri (hné) eru tæpir á meðan Teemu Tainio verður frá næstu 1-2 vikur eftir að hafa meiðst á ökkla, en hann hefur verið afar óheppinn með meiðsli á þessu tímabili.
Spurs hefur ekki gengið alltof vel á St. James’ Park síðustu ár en leikur liðanna þar á síðasta tímabili fór 3-1 fyrir heimamenn þar sem Michael Dawson fékk rautt spjald á meðan Robbie Keane skoraði mark Spurs.
Hópur Spurs: Robinson, Cerny, Chimbonda, Lee, Dawson, King, Assou-Ekotto, Stalteri, Davenport, Gardner, Zokora, Davids, Murphy, Ghaly, Malbranque, Ziegler, Huddlestone, Berbatov, Mido, Defoe.
Dómari: Alan Wiley






