Yfirlit: Hluti II

0
739

Nú er komið að öðrum hluta í yfirferð minni yfir tímabilið til þessa. Í þessari grein er fjallað um miðjumennina. Sóknarmenn koma síðan eftir helgi ásamt almennri umfjöllum um tímabilið hingað til.

Didier Zokora B-
Margir bjuggust við því að Zokora yrði sá leikmaður sem myndi fylla skrarðið sem Carrick skyldi eftir en komið hefur í ljós að hann er mun fjölbreyttari leikmaður. Orðspor hans í Englandi eftir atvikið gegn Portsmouth og einnig gegn Boro er kannski ekki það besta en hann hefur þess utan átt góða leiki og slæma leiki. Zokora getur a.m.k. bætt leik sinn heilmikið en hann hefur leikið langt frá sínu besta hingað til.

Edgar Davids C
Reyndi Hollendingurinn hefur ekki spilað marga leiki síðust vikurnar bæði vegna meiðsla en einnig vegna þess að hann hefur ekki komist í liðið. Margir töldu Davids vera lykilinn af velgengni Spurs í fyrra og hafa viljað sjá meira af honum á þessu tímabili. En allt útlit er fyrir að þetta verði síðasta tímabil hans hjá félaginu. Hann er þó mikilvægur leikmaður í hópnum og mun án efa fá fleiri tækifæri nú þegar afar stutt er á milli leikja.

Teemu Tainio B-
Finninn Teemu Tainio hefur átt við meiðsli að stríða það sem af er þessu leiktímabili og hafa tækifæri hans með liðinu verið háð því. Jol hefur hann samt yfirleitt í liðinu þegar hann er heill heilsu sem þýðir að Jol telur hann vera mikilvægan leikmann.

Jermaine Jenas C+
Jenas er búinn að vera mikið í umræðunni meðal stuðningsmanna Spurs og margir hafa velt því fyrir sér hvort hann verðskuldi sæti í byrjunarliðinu. Það er alveg ljóst að leikur hans á þessu tímbili er ekki jafn góður og í fyrra en þrátt fyrir það hefur hann skorað 2 mörk. Jenas hefur verið frá síðasta mánuðinn vegna meiðsla og verður það fram á nýja árið. Ég tel samt að við munum sjá það besta frá Jenas eftir áramót enda mun hann þurfa að berjast fyrir sæti sínu á miðjunni eftir að Huddlestone og Zokora hafa myndað gott samstarf þar.

Danny Murphy B
Spilamennska Danny Murphy hefur komið svolítið á óvart. Hann var í raun gleymdi maðurinn á miðjunni og í raun ekki búist við að hann myndi spila mikið með. En eftir meiðsli Tainio, Jenas og Lennon spilaði Danny frekar mikið og skoraði á þeim tíma fyrsta mark sitt fyrir Spurs. Hann hefur hins vegar horfið til baka á bekkinn í síðustu leikjum en hann er, líkt og aðrir, mikilvægur varamaður sem getur stoppað flest göt á miðjunni.

Hossam Ghaly B+
Ef leikur Murphy hefur komið á óvart er það ekkert miðað við Hossam Ghaly. Egyptinn ungi lék ekkert með Spurs í fyrra vegna meiðsla en hefur komið sterkur inn á þessu tímabili og komið mörgum mikið á óvart. Hann er í raun kantmaður og hefur hann oftast spilað hægra megin og Lennon þá vinstra megin. Hann er snöggur, fimur og barátta hans hefur verið góð. Eina spurningin með Ghaly er líkamlegt form en hann hefur virkað þreyttur undir lok nokkurra leikja.

Steed Malbranque B-
Kaupin á Steed voru búin að liggja lengi í loftinu en þegar hann loksins var kominn til Spurs þurfti hann að bíða í margar vikur eftir fyrsta leik sínum vegna meiðsla. Þegar hann loksins kom síðan inn í liðið voru fyrstu leikir hans ekkert sérstakir en hann er jafnt og þétt að verði hluti af liðinu. Hann hefur mest leikið á vinstri kantinum en á það til að leita mikið inn á miðsvæðið vegna þess að hann er réttfættur. Malbranque á samt bara eftir að verða betri með Spurs en líkamlegur styrkur hans hefur komið mér mikið á óvart og hann barist vel í leikjum.

Reto Ziegler C
Reto hefur ekki spilað mikið það sem af er tímabilinu og þegar hann hefur spilað hefur hann verið í stöðu vinstri bakvarðar. Þannig að það lítur út fyrir að það verði framtíðarstaða hans sem kemur á óvart því að tímabilið 2004-05 átti hann marga góða spretti á vinstri kantinum ásamt Erik Edman.

Tom Huddlestone A
Þegar hann var keyptur frá Derby voru menn ekki alveg 100% með það á hreinu hvort að hann væri miðjumaður eða varnarmaður. En eftir komuna til Spurs fer það ekki á milli mála að honum líkar best að vera djúpur miðjumaður (í anda Carrick). En spilamennska piltsins á þessu tímabili hefur ekki bara komið okkur aðdáendunum á óvart heldur örugglega líka honum sjálfum. Hann er í raun að fá tækifæri í liðinu vegna meiðsla Jermaine Jenas og hefur hann heldur betur nýtt það tækifæri. Á skömmum tíma er hann orðinn einn vinsælasti leikmaður félagsins, en yfirvegun hans er ótrúleg fyrir 19 ára pilt svo ekki sé minnst á skotkraftinn. Nú vonar maður bara að félagið fari vel með hann og sjái til þess að framtíð hans liggi á White Hart Lane.

Aaron Lennon A-
Kaupin á litla kantmanninum frá Leeds eru líklega með bestu kaupum sem Tottenham hefur gert frá upphafi. Engin bjóst við því að hann myndi hafa svo mikil áhrif á liðið svona fljótt. Þetta tímabil hefur í raun verið beint framhald frá síðasta tímabili en hnéaðgerð í haust hefur þó sett strik í reikninginn. Maður veltir því stundum fyrir sér hvort Lennon spili kannski of mikið en vandamálið er einfaldlega að liðið er farið að reiða sig svolítið mikið á hann. Það sýnir bara hversu góður hann er en ég set spurningmerki við það hvort eðlilegt sé að láta jafn stóran hluta sóknarleiksins fara í gegnum 19 ára gamalan leikmann, eins og raun ber vitni. Hann hefur samt hingað til tekist á við öll þau verkefni sem hann hefur þurft að leysa og framtíð hans er án efa björt.