Newcastle 3-1 Spurs

0
686

Leikmenn Spurs fóru í enn eina svekkjandi ferðina á útivöll í dag þegar liðið beið lægri hlut fyrir Newcastle á St. James´ Park, 3-1. Mark Spurs gerði Danny Murphy.

Jermain Defoe meiddist í upphitun fyrir leikinn sem neyddi Martin Jol til að breyta byrjunarliðinu rétt fyrir leik. Danny Murphy kom inn í liðið en það þýddi að breyta þurfti leikkerfinu.

Þessi seina breyting hefur kannski haft einhver áhrif á leikmennina en Spurs voru komnir 2-0 undir eftir aðeins 7 mínútna leik. Mörkin voru bæði afar vafasöm af hálfu Spurs. Ledley King og Paul Robinson hefðu báðir getað gert betur í fyrra markinu en síðara markið var líklega rangstæða.

Spurs svöruðu þó ágætlega og náðu að minnka muninn um miðjan hálfleikinn með marki Danny Murphy. Eftir markið tóku Spurs leikinn í sínar hendur án þess þó að skapa sér almennileg marktækifæri.

Newcastle gerðu lítið eftir þessa frábæru byrjun en þeir skoruðu þriðja markið skömmu fyrir leikhlé eftir að Paul Robinson tókst ekki að halda aukaspyrnu. Það má segja að Robinson hafi átt einn versta leik sinn fyrir Spurs í dag.

Maður bjóst við því að leikmenn Spurs myndu berjast mikið í seinni hálfleik en það varð ekkert úr því og spilamennska liðsins einkenndist af einbeitingarleysi. Ekki hjálpaði að Berbatov var einn frammi og ekki fékk hann mikla hjálp frá miðjumönnunum.

Leikurinn endaði 3-1 og eru úrslitin mikil vonbrigði fyrir stuðningsmenn Spurs sem og leikmenn og þjálfara. Martin Jol sagði eftir leikinn að leikmenn Newcastle hefðu verið ákveðnari í leiknum en það veldur manni áhyggjum að ákveðnin sé ekki til staðar þegar farið er í erfiðan útileik á mikilvægasta tíma leiktímabilsins.

Næsti leikur er á annan jóladag gegn Aston Villa á White Hart Lane og ekki kæmi á óvart ef leikmenn Spurs næðu að rétta úr kútnum þá.

Lið Spurs:  Robinson 4, Lee 6, King 4, Dawson 5, Chimbonda 6, Murphy 7, Huddlestone 6, Zokora 5 (Mido 66), Ghaly 4, Berbatov 6, Malbranque 5. Ónotaðir varamenn: Cerny, Davenport, Assou-Ekotto, O’Hara.